Error loading media: File could not be played
Lyrics
Núna sefur dóttir þin á meðan nóttin færist yfir,
norðanvindur úti blæs og frostið bitur allt sem lifir.
Fjölskyldan í baðstofunni þar sem fann ég ykkur sitja.
Þið voruð falleg og hraust
er inn um búrið ég braust,
ég vildi barnsins litla vitja.
Mara.
Mara.
Þið voruð falleg og hraust
er inn um búrið ég braust,
ég vildi barnsins litla vitja.
Mara.
Vafði hana örmum og hún vissi ekki meira,
veinið ó svo ósköp lágt, en þu áttir samt að heyra.
Örvænting og grátur hræddu alla milli stafna.
Þid sátud öll þar í kring.
Þid genguð hring eftir hring
og sáuð hana loksins kafna.
Mara.
Mara.
Þid sátud öll þar í kring.
Þid genguð hring eftir hring
og sáuð hana loksins kafna.
Mara.
Barnið dó í höndum mér, ég burtu fór í snatri,
börðust hjörtu ykkar full af angist, sorg og hatri.
Ég er illur óþverri og gleðst er aðrir gráta.
Núna geng ég á burt,
þid getið spurninga spurt,
en ég er spádómur og gáta.
Mara.
Mara.
Núna geng ég á burt

« Móri | Sorgir Songs | Höndin Sem Veggina Klórar (Bonus Track) » |